Já SællBrynjar Davíðsson
Hef ekki hripað í slatta tíma.Er réttlætanlegt að byrja að blogga á ný ??
Efast um svör......
JÓL 07Brynjar Davíðsson
Gleðileg Jól.BD
Ný DönskBrynjar Davíðsson
Ný Danskir ollu öngvum vonbrigðum á tónleikum sínum,sem þeir héldu í leikhúsinu í gærkveld.Hver perlan rak aðra,BJF fór algerlega hamförum,vann leiksigur.Daníel Ágúst var svo sannarlega auðfúsugestur er hann gekk inn á sviðið og tók seinni helmingin með gömlum vinum.Það er gaman að vera Nýdanskur,sagð ann.Krulli Ólafs gerði öllum mikin greiða og einbeitti sér að tónlistinni og leyfði Birni að sjá um talið að mestu.
FRÁBÆRT
TraustBrynjar Davíðsson
Sjáið og upplifið þennan mann.Þvílíkur snillingur,ég hugsaði um leið og Utd skoraði annað mark sitt að nú væri tími Almunia búin.Sem betur fer er ekkert Liverpoolsyndrom í gangi.Arsene Wenger hefur áfram trú á Almunia
| Almunia í leiknum í gær. |
Almunia hafð hirt markvarðarstöðuna af Jens Lehmann í ágúst og Þjóðverjinn hefur verið duglegur að gagnrýna þá ákvörðun hans.
Í síðara marki Man Utd í gær fór Almunia að óþörfu út úr markinu og því gat Cristiano Ronaldo skorað í autt markið. Wenger ætlar samt að halda Almunia í liðinu áfram.
,,Lehmann var meiddur og Almunia hefur staðið sig virkilega vel síðan þá, 10 leiki í röð," sagði Wenger. ,,Ég vildi ekki rugla liðið," bætti hann við.
,,Fram til þessa hefur hann staðið sig mjög vel. Ég trúi á að halda mig við einn markvörð. Maður getur ekki sagt við hann, 'Sama hvað þú gerir mörg mistök, þá verðurðu alltaf markvörðurinn minn'. En maður verður að gefa honum allavega tvo leiki."
Varðandi frammistöðu Almunia í leiknum gegn Manchester United telur Wenger að Spánverjinn muni verða sjálfur gagnrýninn.
,,Hann fór út til að stöðva sendingu og hann var óánægður með ákvörðunartökuna. Hefði hann getað náð boltanum? Hefði hann átt að vera við markið?"
,,Hann yfirgaf markið sitt og náði boltanum ekki, svo honum finnst sem hann hafi gert mistök. Ég verð að sjá þetta aftur."
ÚR FRÍI Í FRÍIBrynjar Davíðsson
Jú það er satt sem að mér hefur verið hvíslað,ekki gengur að vera í bloggfríi að eilífu og því komin tími til að tjá sig eitthvað eða hætta.Ég hef ákveðið að hripa nokkur orð og kannski reglulega,jafnvel.Held samt að ég sé efins,en er þó ekki viss.Annars snýst þetta aðallega um það að vera í fæðingarorlofi,sinna þ.a.l fjölskyldunni,nýfæddum syni og svo er ég með þessu, svolítið mikið að hlusta á hina fjóra fræknu.U2 á hreinlega hug minn allan þessi dægrin.
Það er komin þessi myndarlega rigning hér í upphafi verslunarmannahelgi og ég spyr hvað á að gera við 23 ára gömlu unglingana sem ekki mega tjalda á Akureyri um helgina ?Ég veit það ekki en Bæjarstýran og skátarnir vita það eflaust !!
Meistaradeild.Brynjar Davíðsson
Það er ekki alltaf gaman að boltanum og oftar en ekki svekkjandi að tapa.En svona er þetta víst.Dómari leiksins var alveg klárlega ekki með Rolex.
Samt geta Poolarar eingöngu nagað sín handabök.Voru mun sterkari en samt vantaði eitthvað.
Ég þakka öllum sem ég horfði upp á, horfa á leikin.
p.s Það er ekki rétt að ég hafi verið í Liverpool búning ef einhver spyr !!!!
Valentine LOSTBrynjar Davíðsson
Já nú held ég að komin sé tími til að slaufa evróvision í bili.Ég meina Búlgaría komst áfram með trommulaginu sem ég tel eitt versta lag sögunar !!!Eiki var flottur samt.
Eitt stig var nóg...Brynjar Davíðsson
Það eru nú varla grimmari örlogin en þau að tryggja Utd titilin.En til hamingju allir Mínir Utd vinir og frændur.Það er alltaf skemmtilegast að vinna deildina,jafnvel þó að mínir ágætu Liverpool félagar haldi öðru fram.Það er nú sennilega vegna þess hvursu langt er síðan það tókst hjá þeim síðast.Heilu áratugirnir hafa víst liðið.
Jeff Who ?Brynjar Davíðsson
Jú komiði sæl og blessuð.
Jeff Buckley er minnst um mundir þesssar,enda 10 ár síðan hann fékk sér sundsprett sem fékk vægast sagt slæman enda.Held að engi viti hvort það var slys eða sjálfsmorð.Ég er að lesa grein um hann sem er að finna í maí hefti Uncut og svo er gott að hlusta á Grace enda nauðsynleg í hvert plötusafn.
Annars bara allir hressir,þrátt fyrir að gæludýrið Tristan hafi verið svæft í dag.Blessuð sé minnig góðs hamsturs !!!!